flugfréttir

Röng flapastilling talin orsök flugslyss í Connecticut

7. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:45

Flugvélin sem brotlenti bar skráninguna N1727V

Röng stilling á flöpum er talin vera orsök flugslyss sem átti sér stað í Connecticut í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum er kennsluflugvél af gerðinni Cessna C172 brotlenti skömmu eftir flugtak á grasflugvelli.

Um borð í vélinni var nemandi sem var komin með 15 flugtíma auk flugkennara en samkvæmt gögnum þá lenti vélin á grasbraut skömmu áður og er talið að flapar hafi ekki verið dregnir inn fyrir flugtakið.

Vélin náði aðeins að klifra upp í 150 feta hæð yfir jörðu þar til hún brotlenti í um 300 metra fjarlægð frá brautarenda.

Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) þá voru engin ummerki um neina bilun í vélinni en í ljós kom að gleymst hafði að taka up flapa eftir lendinguna og fór vélin því í loftið með 40° flapa en undir engum kringumstæðum er mælst til þess að fara í flugtak á Cessna 172 með meira en 10 gráðu flapa.

Talið er að 40 gráðu flapastilling í flugtaki hafi valdið því að vélin náði ekki að klifra hærra og hafi flughraði hennar lækkað á sama tíma og gerð var tilraun til þess að ná meiri hæð í flugtaki þar til vélin fór í ofris og brotlenti.

Ekki er vitað hvort að nemandinn eða flugkennarinn hafi verið við stjórn vélarinnar í flugtakinu en flugkennarinn lést í slysinu og nemandinn hlaut mjög alvarlega áverka.

Slysið átti sér stað nálægt New Milford-Candlelight Farm flugvellinum, skammt norðvestur af borginni New Haven í Connecticut, þann 11. ágúst árið 2017.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga