flugfréttir
Flugmenn Ryanair boða til verkfallsaðgerða
Fyrstu verkfallsaðgerðirnar hefjast þann 22. ágúst næstkomandi
Þeir farþegar, sem eiga bókað flug með Ryanair, eiga von á töluverðri röskun á flugi í enda ágúst og byrjun september eftir að flugmenn félagsins kusu um verkfallsaðgerðir sem hefjast á næstunni.
Í yfirlýsingu frá félagi breskra atvinnuflugmanna (BALPA) segir að áratugalöng ákvörðun Ryanair um að hunsa
rétt flugmanna á að vera í verkalýðsfélögum leiði enn og aftur til verkfallsaðgerða.
Framundan er 48 tíma verkfall sem á að skella á þann 22. ágúst næstkomandi og 72 tíma verkfallsaðgerðir eru
fyrirhugaðar þann 2. september.
„Enginn flugmaður vill eyðileggja ferðaáætlun farþega en eins og staðan er núna þá eiga þeir engan annan möguleika“, segir
Brian Strutton, yfirmaður BALPA.
Ryanair hefur ekki komið með neitt tilboð fyrir flugmenn eða svarað fyrir fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir en BALPA
segir að margir flugmenn hjá Ryanair hafa kvartað yfir launamálum, málum varðandi greiðslum í lífeyrissjóð auk
mála er snerta fríðindi og starfsumhverfi þeirra.
Um 72% tóku þátt í að kjósa um verkfallið og af þeim voru um 80 prósent flugmanna sem kusu með verkfallsaðgerðum en
Ryanair segir að færri en 50% af þeim eru meðlimir í BALPA og aðeins 57% hafi kosið með verkfalli.
Ryanair hefur þegar varað starfsmenn sína við viðamiklum niðurskurði í haust og segir félagið að Ryanair hafi 900
fleiri flugmenn og áhafnarmeðlimi en félagið þarf á að halda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.