flugfréttir
Ætla að halda lengur í Q400 vegna vandans með 737 MAX
Bombardier Q400 flugvél Alaska Airlines
Alaska Airlines hefur tekið aftur í notkun tvær Bombardier Dash 8 Q400 flugvélar til þess að fylla í skarð þriggja Boeing 737 MAX 9 þotna sem félagið átti að fá afhentar á þessu ári en búið var að taka Q400 vélarnar tvær úr flotanum.
Alaska Airlines á von á 32 Boeing 737 MAX þotum sem allar eru af gerðinni 737 MAX 9 en félagið átti að fá þá fyrstu afhenta
fyrir lok júnímánaðar og þrjár til viðbótar fyrir lok ársins en vegna kyrrsetningar á þotunum hefur afhendingaráætlun breyst líkt og hjá öðrum flugfélögum.
Alaska Airlines byrjaði að losa sig við fyrstu Bombardier Dash 8 Q400 flugvélarnar árið 2017 en þær hafa flogið undir merkjum
Horizon Air og stendur til að skipta þeim út fyrir Embraer E175 þotum.
Búið var að taka tvær Q400 vélar úr umferð en Alaska Airlines hefur ákveðið að bíða með að taka þær úr flotanum og hefur
nú þegar sett tvær vélar aftur í leiðarkerfið.
Elstu Q400 vélar Alaska Airlines eru að nálgast það að verða 20 ára gamlar en stór hluti vélanna eru yngri en fimm ára gamlar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.