flugfréttir

320 milljarðar í uppbyggingu flugvalla á Indlandi

12. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:45

Frá flugvellinum í Bangalore á Indlandi

Indverks flugvallaryfirvöld ætla að fjárfesta í uppbyggingu flugvalla á Indlandi fyrir um 320 milljarða króna á næstu þremur árum og stendur til styrkja sérstaklega innviði minni flugvalla í landinu.

Þetta er haft eftir aðila sem starfar hjá flugvallaryfirvöldum á Indlandi sem tekur einnig fram að framkvæmdir hafi nú þegar hafist á nokkrum flugvöllum í landinu og aðrar framkvæmdir hefjast á næstunni.

Til stendur að búa til yfir 273 stæði á 24 flugvöllum og verður því dreift jafnt á helstu flugvelli um allt landið sem skiptist niður í ný stæði á 82 flugvöllum í suðurhluta Indlands, 70 stæði á flugvöllum í austur og norðausturhluta landins, 61 á flugvöllum í norðurhlutanum og 60 stæði á flugvöllum í vesturhlutanum.

Megintilgangur framkvæmdana er að koma til móts við aukna flugumferð í landinu en innanlandsflugið á Indlandi hefur aukist gríðarlega á sl. árum en indversk flugfélög á borð við Jet Airways, IndiGo, SpiceJet og GoAir eiga til samans von á 968 nýjum flugvélum á næstu árum.

Þá stendur til að ráðast í framkvæmdir á endurnýjun á flugbrautum auk þess sem einhverjir flugvellir fá nýjar brautir og þá á einnig að reisa nýjar flugstöðvar í stað eldri sem eru komnar til ára sinna.

Burt séð frá endurbótum þá er einnig verið að vinna að framkvæmdum á nýjum flugvöllum sem teknir verða í notkun á næstu árum en kosnaður við framkvæmdir þeirra og endurbæturnar eru fjármagnaðar af flugvallaryfirvöldum, rekstaraðilum flugvalla auk þess sem fjárfestar taka þátt í verkefnunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga