flugfréttir
Ryanair í mál við fráfarandi rekstrarstjóra félagsins
- Peter Bellew ætlar yfir til samkeppnisaðilans easyJet
Peter Bellew tók við starfi rekstarstjóra Ryanair í desember árið 2017 en hann mun yfirgefa félagið fyrir lok þessa árs
Ryanair hefur höfðað mál gegn Peter Bellew, fráfarandi rekstrarstjóra félagsins, sem er á förum yfir til easyJet sem er aðal samkeppnisaðili Ryanair.
Bellew tilkynnti í seinasta mánuði að hann væri á förum frá Ryanair fyrir lok þessa árs en viku síðar, er easyJet birti rekstrarafkomu
sína, var tilkynnt um að Bellew myndi taka við stöðu rekstrarstjóra easyJet.
Fram kemur að allir yfirmenn hjá Ryanair hafa langan uppsagnarfrest er þeir yfirgefa félagið og þá eru skilmálar um að þeir
megi ekki taka við sambærilegri stöðu hjá samkeppnisaðila.
„Það er ekki ætlast til að neinn yfirmaður hjá Ryanair fari yfir til samkeppnisflugfélags og þarf ákveðinn tími að líða fyrst
áður en slíkt getur átt sér stað“, segir Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair.
Framkvæmdarstjóri easyJet, Johan Lundgren, tilkynnti þann 18. júlí að Peter Bellew myndi taka við stöðu
Chris Browne sem tilkynnti um afsögn sína í mars í vor en ekki er komin ennþá nein dagsetning á hvenær skipt
verður um rekstrarstjóra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.