flugfréttir

Mótmælendur leggja undir sig flugstöðina í Hong Kong

- Yfir 100 flugferðum aflýst um Chek Lap Kok flugvöllinn

12. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:17

Varla er þverfóta fyrir mótmælendum inni í flugstöðinni á flugvellinum í Hong Kong þessa stundina

Allt flug um Chek Lap Kok flugvöllinn í Hong Kong liggur nú niðri eftir að mótmælendur hertóku flugstöðina, fjórða daginn í röð, en nú með enn harðari mótmælaaðgerðum.

Yfir 100 flugferðum hefur verið aflýst eftir að þúsundir mótmælenda ruddust inn í aðalflugstöðvarbygginguna til þess að mótmæla aðgerðum lögreglu við mótmælum sem fram fóru í gær.

Flugvöllurinn í Hong Kong er stærsti fraktflugvöllur heims auk þess sem hann er 8. stærsti flugvöllur í heimi er kemur að fjölda farþega og sá fjórði annasamasti í Asíu og hefur truflunin því mjög mikil áhrif fyrir flugfélögin sem fljúga um völlinn.

Mótmælendur komu saman bæði við flugvallarsvæðið og einnig inni í flugstöðinni

Mótmælendur byrjuðu á því að fylla komusalinn en í kjölfarið fóru mótmælendur að streyma inn í brottfararálmuna. Mótmælin á flugvellinum hófust sl. föstudag og fóru þá friðsamlega fram en nú hefur meiri harka færst í leikinn með auknum fjölda þátttakenda.

Flugvöllurinn í Hong Kong tilkynnti í morgun að búið væri að fella niður allar flugferðir fyrir utan þau flug þar sem farþegar höfðu þegar innritað sig auk komuflugs sem var á leiðinni til Hong Kong.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga