flugfréttir
Brak úr hreyfli féll til jarðar í flugtaki hjá Norwegian í Róm
- Málmbútum rigndi yfir bíla og hús í bænum Fuimicino
Þotan var í flugtaki sl. laugardag á leið frá Róm til Los Angeles þegar bilun kom upp í hreyfli í 3.000 fetum
Brak úr hreyfli á Dreamliner-þotu frá Norwegian féll til jarðar eftir að bilun kom upp í hreyfli í flugtaksklifri frá Fiumicino-flugvellinum í Róm um helgina.
Esterino Montino, bæjarstjórinn í Fiumicino, segir að 25 bílar hafi orðið fyrir brakinu og brotnuðu meðal annars framrúður í þeim og þá féll brak á tólf hús auk þess sem einn gangandi vegfarandi varð fyrir braki. Manninum varð ekki meint af en honum var mjög brugðið.
Íbúi bæjarins heldur á nokkrum bútum sem féllu til jarðar
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 787-8, var í flugtaki á leið frá Róm til Los Angeles sl. laugardag en flugmennirnir snéru við er þeir urðu
varir við bilun í öðrum af tveimur Trent 1000 hreyflum vélarinnar í 3.000 fetum og lýstu þeir yfir neyðarástandi en þotan lenti skömmu síðar.
Ítalskir fjölmiðlar hafa eftir sjónarvottum að glóandi málmbútar hafi fallið til jarðar en samgönguyfirvöld á Ítalíu hafa hafið rannsókn
á atvikinu og verður mögulega farið fram á að skoðun verði framkvæmd á hreyflum sömu gerðar í kjölfarið.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.