flugfréttir

Taka á leigu Boeing 737-200 til að fylla í skarð 737 MAX

- Mikil eftirspurn eftir Boeing 737-800 fimm mánuðum eftir kyrrsetningu

13. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:53

Einni Boeing 737-200 þotu var flogið til Toronto til þess að fljúga með farþega fyrir Sunwing Vacation

Mikil eftirspurn er núna eftir gömlum Boeing 737 þotum vegna kyrrsetningar á Boeing 737 MAX þotunum en þetta er haft eftir flugvélaleigum sem leigja út flugvélar til flugfélaga.

Í dag eru komnir 5 mánuðir frá því bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) kyrrsettu Boeing 737 MAX þoturnar auk flugmálayfirvalda víða um heim og fimm mánuðir voru í gær frá því þotan var kyrrsett í Evrópu af EASA.

Fimm mánuðir er langur tími er kemur að flugrekstri en vegna þessa hafa flugvélaleigur séð fram á mikla eftirspurn eftir gömlum Boeing 737 þotum og þá aðallega vélum af gerðinni Boeing 737-800.

„800 týpan er eins og gull þessa daganna“, segir Phil Seymour, framkvæmdarstjóri flugráðgjafarfyrirtækisins IBA í London, sem tekur fram að 40% hækkun hafi orðið á leigugjöldum á Boeing 737-800.

Phil Seymour hjá IBA telur að flugfélög séu að tapa um 18 milljónum
króna á dag á hverja Boeing 737 MAX þotu sem er kyrrsett

Að sögn Seymour þá velja flugfélög Boeing 737-800 þar sem henni svipar til Boeing 737 MAX og auðvelt að setja áhafnir á þá flugvélategund til að nýta flugmennina áfram. Boeing 737-200 týpan hinsvegar hefur ekki verið notuð af neinu bandarísku flugfélagi í 14 ár en Southwest Airlines hætti með þær í rekstri árið 2005 og eru í dag aðeins 38 eintök enn í notkun í heiminum.

Vefsíðan Fliegerfaust greindi frá því í gær að flugfélög séu orðin það örvæntingarfull að dæmi er um eitt flugfélag í Kanada sem hefur tekið á leigu Boeing 737-200 þotu sem var ein fyrsta 737 þotan sem kom á markaðinn árið 1968 en framleiðslu hennar leið undir lok árið 1988 og uppfyllir hún til að mynda ekki reglugerðir um hávaðatakmarkanir á evrópskum flugvöllum.

Flugfélagið sem um ræðir er Sunwing Airlines sem hefur tekið á leigu Boeing 737-200 frá Nolinor Aviation í Mirabel í Kanada vegna skorts á flugvélum en Sunwing hafði fjórar Boeing 737 MAX 8 þotur sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars.

Flestar Boeing 737-800 vélarnar í útleigu hjá flugvélaleigum

Flest ef ekki öll flugfélög, sem höfðu pantað Boeing 737 MAX eða voru komin með þotuna í notkun áður en kyrrsetningin tók í gildi, reiknuðu með hagræðingu í rekstri þar sem 737 MAX er sparneytnari en mörg flugfélög sjá fram á mikinn taprekstur á þessu ári þar sem öll áform hafa raskast vegna þessa á sama tíma og 5% aukning hefur átt sér stað í farþegaflugi um allan heim.

Michael Inglese, framkvæmdarstjóri flugvélaleigunnar Aircastle segir að flestir áttu von á því að kyrrsetningin myndi standa yfir í stuttan tíma en nú hefur komið í ljós að hún mun vara eitthvað lengur og hafa flugfélög á borð við Southwest Airlines og GOL í Brasilíu ákveðið að halda lengur í eldri Boeing 737 þotur sem áttu að vera farnar úr flotanum.

Sömu sögu segir Colm Barrington hjá Fly Leasing í Írlandi. „Við höfum leigt út allar Boeing 737-800 þotur“ og í sama streng tekur Aengus Kelly hjá AerCap sem segir að allar Boeing 737-800 vélarnar hjá þeim séu í útleigu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga