flugfréttir

Cabo Verde Airlines tekur í notkun Boeing 737-300 þotu

15. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:31

YR-CBK í litum Cobrex Trans

Cabo Verde Airlines, flugfélagið á Grænhöfðaeyjum, hefur tekið í notkun Boeing 737-300 þotu sem félagið mun nota til þess að fljúga áætlunarflug frá Nelson Mandela flugvellinum við bæinn Praia til Lissabon í Portúgal.

Með þessu ætlar félagið að auka tíðni á flugi milli Praia og Lissabon upp í þrjár flugferðir í viku vegna aukinnar eftirspurnar á flugsætum milli Grænhöfðaeyja og Portúgals en flugferðirnar verða allar samræmdar við flug milli til eyjunnar Sal þar sem Cabo Verde Airlines hefur höfuðstöðvar.

Með Boeing 737-300 þotunni mun flugfloti Cabo Verde Airlines fara upp í fjórar þotur en félagið hefur þrjár Boeing 757 þotur í flotanum og þar af eina sem er á leigu frá Loftleiðir Icelandic sem á 51% hlut í flugfélaginu.

Boeing 757-200 þotur Cabo Verde Airlines sinna áætlunarflugi frá eyjunni Sal til Dakar, Lissabon, Parísar, Mílanó, Rómar, Boston, Fortaleza, Recife og Salvador.

Þá hefur ríkisstjórn Grænhöfðaeyja tilkynnt að félagið muni hefja áætlunarflug til Luanda í Angóla í desember.

Boeing 737-300 þotan, sem Cabo Verde Airlines hefur tekið í notkun, kom til eyjanna sl. þriðjudag og mun hún hefja áætlunarflug þann 30. ágúst. Þotan ber skráninguna YR-CBK og flaug hún áður fyrir rúmenska flugfélagið Cobrex Trans.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga