flugfréttir

Brotlenti er flugmaðurinn teygði sig í hurð sem hafði opnast

- Missti stjórn á Cessna 170 í fráhvarfsflugi

15. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

Flugvél af gerðinni Cessna 170

Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) telja að orsök flugslyss, er lítil flugvél af gerðinni Cessna 170 brotlenti í Bandaríkjunum árið 2017, megi rekja til þess að flugmaður gerði tilraun til að loka hurð sem opnaðist skyndilega í fráhvarfsflugi er hann hætti við lendingu.

Slysið átt sér stað á Seneca-flugvellinum í bænum Axtell í Kansas þann 11. ágúst árið 2017 en að sögn flugmannsins þá hafði hann ákveðið að hætta við lendingu á flugvellinum og setti hann fullt afl á mótorinn til þess að hækka flugið aftur.

Skyndilega í fráhvarfsfluginu opnaðist hurðin á vélinni vinstra megin og reyndi hann að teygja sig aftur í til að loka henni en misst stjórn á vélinni með þeim afleiðingum að hún fór í ofris og féll niður í jörðina.

Flugmaðurinn sagði að engin bilun hafi komið upp og er orsökin rakin til þess að flugmaðurinn hafi ekki fylgst með hraðanum og áfallshorninu sem var orðið of mikið í fráhvarfsfluginu þar sem hann ákvað að reyna að loka hurðinni sem hafði opnast á viðkvæmu stigi flugsins.

Tveir voru um borð í vélinni og sluppu þeir án meiðsla Flugmaðurinn var 18 ára er slysið átti sér stað og er hann einkaflugmaður og farþeginn var 21 árs. Flugvélin, sem var af gerðinni Cessna 170, var stélhjólsflugvél, framleidd árið 1948.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga