flugfréttir
Gera ekki ráð fyrir 737 MAX fyrr en eftir áramót
TF-ICE, Boeing 737 MAX 8 þota Icelandair, á Keflavíkurflugvelli
Icelandair hefur nú uppfært flugáætlun sína til ársloka. Félagið gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX vélum í rekstri fyrir þann tíma og hefur aðlagað flugáætlun sína í samræmi við það og aðra þróun á markaði.
Heildarsætaframboð félagsins í nóvember og desember verður aukið um tæplega 3% miðað við sama tímabil 2018 . Sætaframboð til Evrópu verður aukið töluvert, t.d. til Kaupmannahafnar, Dublin, Brussel og Berlínar.
Heildarsætaframboð til Norður-Ameríku dregst hins vegar saman milli ára, sem skýrist aðallega af fækkun áfangastaða frá fyrra ári eins áður hefur komið fram. Þá verður Portland ekki hluti af vetraráætlun félagsins en flug þangað hefst aftur næsta vor.
Þrátt fyrir þetta verður þó aukning í framboðnum sætum til ákveðinna áfangastaða í Norður Ameríku, svo sem Minneapolis, Vancouver, Denver og Orlando.
Eins og fram hefur komið hefur félagið lagt megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi undanfarin misseri. Félagið hefur aldrei flutt fleiri farþega til og frá Íslandi á tímabilinu frá 1. janúar og til loka júlí en á þessu ári, eða rúmlega 1,4 milljónir farþega, sem er aukning um 26% milli ára.
Leigusamningur einnar af þeim fimm flugvélum sem félagið bætti við flota sinn í sumar, til að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu, hefur verið framlengdur út október nk. Aðrir leigusamningar um flugvélar, sem gerðir voru vegna kyrrsetningar MAX vélanna, verða ekki framlengdir.
Eins og fram kom í uppgjöri annars ársfjórðungs hjá félaginu, voru þegar áætluð fjárhagsleg áhrif MAX kyrrsetningarinnar metin á um 140 milljónir USD miðað við að kyrrsetningin stæði út októbermánuð en áætluð viðbótaráhrif vegna þessara breytinga liggja ekki fyrir að svo stöddu. Félagið er þegar í viðræðum við Boeing um að fá allt fjárhagslegt tjón sem hlotist hefur af kyrrsetningu vélanna bætt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.