flugfréttir
Farþegaþota lendir í fyrsta sinn á nýja Gagarin-flugvellinum
Boeing 737-800 þota Pobeda flugfélagsins fær höfðinlegar móttökur við komuna í gær
Farþegaþota lenti í fyrsta sinn í gær á Gagarin-flugvellinum, sem er nýjasti alþjóðaflugvöllur Rússlands, staðsettur í borginni Saratov, tveimur dögum áður en hann verður formlega tekinn í notkun á morgun.
Í gær var flogið sérstakt tilraunarflug með „farþega“ frá Moskvu til Saratov með Boeing 737-800 þotu frá flugfélaginu Pobeda en um borð voru um 100 boðsgestir
ásamt embættis- og stjórnmálamönnum.
Framkvæmdir hófust við Gagarin-flugvöll árið 2013 en fjórum sinnum hefur
opnun vallarins verið frestað. Seinast stóð til að hann myndi opna í desember 2018
en núna lítur allt fyrir að fyrstu flugfélögin byrji að fljúga til Gagarin-flugvallarins á morgun, 20. ágúst.
Framkvæmdir hófust við Gagarin-flugvöllinn árið 2013
Pobeda, dótturfélag Aeroflot, verður fyrsta flugfélagið til að hefja flug til Gagarin-flugvallarins
frá Vnukovo-flugvellinum í Moskvu en auk annarra flugfélaga sem hafa boðað
komu sína er Aeroflot, Pegas Fly, RusLine, S7 Airlines og Utair.
Saratov var eitt sinn ein af stærstu borgum Rússlands á tímum Sovíetríkjanna og þjónaði hún
miklum hernaðarlegum tilgangi í seinni heimstyrjöldinni og var þar meðal annars
stór flugvélaverksmiðja í borginni þar sem herflugvélar voru framleiddar á tímum kalda stríðsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.