flugfréttir
Southwest sker niður sautján flugleiðir í leiðarkerfinu
- Niðurskurðinn má tekja til vandamálsins með Boeing 737 MAX
Boeing 737 MAX þotur Southwest Airlines
Southwest Airlines hefur tilkynnt að félagið ætlar sér að fella niður 17 leiðir í leiðarkerfi félagsins um áramótin til þess að hagræða flugáætlun sinni en niðurskurðinn má rekja til kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna.
Southwest segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin til að einblína frekar á flug milli þeirra borga þar sem eftirspurn eftir flugsætum er meiri
og ein leiðin til þess er að hætta flugi á þeim leiðum þar sem lítil eftirspurn er eftir flugsætum.
„Við erum að endurskoða þjónustumynstrið í samræmi við bókanir til að vera vissir um að við séum að nýta vélarnar sem best sem fer eftir
eftirspurninni“, segir Dan Landson, talsmaður Southwest Airlines.
Southwest Airlines var komið með 34 Boeing 737 MAX þotur sem allar eru núna í geymslu á Victorville-flugvellinum í Kaliforníu en vélarnar
telja 3% af öllum flugflota félagsins.
Southwest Airlines hefur skorið niður um 3 milljón flugsæti vegna kyrrsetningarinnar sem þýðir að félagið hefur alls fellt niður 180 flugferðir
á dag sem Boeing 737 MAX þoturnar hefðu annars átt að fljúga daglega.
Frá og með janúar 2020 mun félagið því hætta að fljúga milli eftirfarandi borga:
Los Angeles - Cancun
Los Angeles - Puerto Vallarta
Los Angeles - Omaha
Los Angeles - Pittsburgh
Boston - Atlanta
Boston - Kansas City
Boston - Milwaukee
Dallas - Oklahoma City
Dallas - Jacksonville
Dallas - San Francisco
Orlando - Oakland
Orlando - San Jose
Orlando - Sacramento
Fort Lauderdale - Jacksonville
New York (LaGuardia) - Orlando
Colombus - Oakland
Austin - San Francisco
Í stað þess ætlar félagið að bæta við flugi til Hawaii-eyja með því að hefja til að mynda flug
frá Sacramento til Honolulu, frá Oakland og San Jose til Lihue og Kona auk þess sem félagið
mun hefja í fyrsta sinn flug milli tveggja áfangastaða á eyjunum frá Kona til Kahului.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.