flugfréttir

Aðeins 12 flugfélög munu fljúga heimshorna á milli í framtíðinni

- Forstjóri Lufthansa sér fram á að fleiri flugfélög eigi eftir að sameinast

20. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:54

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, spáir því að í framtíðinni verði í mesta lagi aðeins 12 flugfélög sem munu deila með sér langflugi til fjarlægra áfangastaða í heiminum.

Spohr telur að slæmt efnahagsástand í framtíðinni gæti orðið til þess að fleiri flugfélög eigi eftir að sameinast sem verður til þess að færra flugfélög eiga eftir að sinna flugi milli heimsálfa.

„Iðnaðurinn er að þróast út í það að á endanum verða um tólf flugfélög sem fljúga um allan heim á stærstu langflugsleiðunum til viðbótar við smærri flugfélög sem fljúga milli heimsálfa“, sagði Carsten Spohr sl. mánudag.

Spohr nefndi ekki hvaða flugfélög það verða en tók fram að hann sér fram á að það gætu verið þrjú bandarísk flugfélög, þrjú flugfélög í Kína, þrjú í Evrópu og þrjú flugfélög í Miðausturlöndum.

Spohr varar við því að áframhaldandi vandamál í efnahagi víða um heim gæti haft mikil áhrif á flugfélög og þá sérstaklega á flugfélögin í Evrópu sem gætu neyðst til þess að íhuga samruna við önnur flugfélög.

Spohr nefnir gjaldþrot nokkurra flugfélaga í Evrópu á borð við Air Berlin og Germania en Lufthansa tók yfir bæði flugleiðir og flugvélar þeirra flugfélaga eftir gjaldþrot þeirra.

Framkvæmdarstjórinn segir að rekstur flugfélaga sé mjög sveiflukenndur og koma áhrif af versnandi efnahag mjög fljótt niður á rekstri þeirra samanborið við önnur fyrirtæki.

Þess má geta að hagnaður Lufthansa dróst saman um 70% á öðrum ársfjórðungi og segir Spohr að félagið sé í harðri samkeppni við evrópsku lágfargjaldarfélögin í „einstöku verðstríði“ sem upp hefur komið. Spohr tók fram að Lufthansa ætli ekki að láta bola sig í burtu af innanlandsmarkaðnum í Þýskalandi vegna þessa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga