flugfréttir
Flugmenn hjá Transavia boða til verkfalls
Boeing 737 þota Transavia
Flugmenn hjá lágfargjaldafélaginu Transavia France, dótturfélag Air France-KLM, hafa boðað til verkfalls og hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem varað er við verkfallsaðgerðum frá 1. september fram til 15. október.
Um 350 flugmenn fljúga fyrir Transavia France, sem flýgur meðal annars til Íslands frá París, en
30% þeirra eru meðlimir í verkalýðsfélaginu SPL.
Flugmenn eru óánægðir með að kjaraviðræður við franska flugmenn sem eru í franska verkalýðsfélaginu SNPL nái ekki yfir þá flugmenn Transavia France sem eru meðlimir
í SPL og séu þeir skildir útundan vegna breytinga sem urðu til er reglugerðum var breytt með tilliti til fjölda flugvéla og áhafna sem tilheyra Transavia France.
Transavia France hefur 40 þotur í flotanum sem eru með bækistöðvar á Orly-flugvellinum í París, Nantes og í Lyon en Transavia í Hollandi
hefur 57 þotur sem fljúga frá Amstedam, Rotterdam og Eindhoven.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.