flugfréttir
Verkfallsbann sett á írska flugmenn hjá Ryanair
- Boðuðu til verkfalls á morgun og föstudag
Boeing 737-800 þota Ryanair
Hæstiréttur Írlands í Dublin hefur stöðvað fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir meðal írskra flugmanna hjá Ryanair.
Flugmenn Ryanair á Írlandi höfðu boðað til verkfalls á morgun og föstudag en lögfræðingar hjá Ryanair tilkynntu
dómstólum að Fonsa, verkalýðsfélag flugmanna, sem fer fyrir um 180 flugmönnum félagsins, hafi ekki leyft viðræðum að
renna sitt skeið áður en þeir boðuðu til verkfalls og á þeim forsendum væru aðgerðirnar ólögmætar.
Lögfræðingar Fonsa segja hinsvegar að stjórn Ryanair hafi hafnað 30 blaðsíðna tilboðstillögu sem flugmenn hafi afhent
félaginu með tillögum um bættari kjör.
Flugmenn hjá British Airways hafa einnig boðað til verkfalls á morgun og föstudag og aftur frá 2. til 4. september.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.