flugfréttir
Óska eftir hugmyndum að sparnaði frá farþegum
- Taprekstur Thai Airways nemur 5.9 milljörðum frá áramótum
Flugvélar Thai Airways á flugvellinum í Bangkok
Tælenska flugfélagið Thai Airways stefnir á glæða nýju lífi í flugfélagið með því markmiði að hagræða rekstrinum og yngja upp ímynd félagsins.
Ein leiðin sem flugfélagið ætlar að fara er að óska eftir sparnaðarhugmyndum frá farþegum sem geta sent inn tillögur með
þeirra hugmyndir ef þeim dettur í hug sniðug leið fyrir flugfélagið til að ná að spara til að gera reksturinn betri.
Félagið segir í tilkynningu að það hafi áhuga á að heyra frá farþegum ef þeir hafa „lausn“ eða tillögu að hugmynd um hvaða
leiðir félagið gæti farið til þess að lækka rekstrarkostnað en Thai Airways tapaði 3.2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins og 2.7 milljörðum á öðrum ársfjórðungi.
Rekstur félagsins hefur gengið brösulega upp á síðkastið en félagið á í mikilli samkeppni við önnur flugfélög í Asíu
auk þess sem gengi á Bhat-gjaldmiðlinum í Tælandi hefur verið mjög sterkt.
Þá hefur lokun á lofthelginni yfir Pakistan sett strik sinn í reikninginn auk þess sem minni eftirspurn eftir flugsætum og verðstríð milli
Kína og Bandaríkjanna hefur haft áhrif á reksturinn.
Samt sem áður hefur Thai Airways verið mjög vinsælt flugfélag meðal ferðamanna sem hafa valið það félag oft framyfir önnur flugfélög
þar sem það þykir bjóða upp á góða þjónustu um borð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.