flugfréttir

Svíþjóð pantar sex Pilatus PC-24 sjúkraþotur

- Þær fyrstu verða afhentar árið 2021

21. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:44

Tölvugerð mynd af Pilatus PC-24 þotunni í litum sænsku sjúkraflugsþjónustunnar

Sænska sjúkraflugþjónustan KSA (Kommunalförbundet Svenskt Ambulansflyg) hefur lagt inn pöntun til Pilatus flugvélaframleiðandans í sex sjúkraþotur af gerðinni Pilatus PC-24.

Flugvélarnar verða afhentar með fullum tækjabúnaði og innréttaðar með aðstöðu fyrir sjúkraflutningar en þær fyrstu verða afhentar til Svíþjóðar árið 2021.

Sænska sjúkraflugþjónustan mun með þessu tryggja almennngi öruggar og skjótar flugsamgöngur með sjúklinga um Svíþjóð sem teygir sig yfir 1.500 kílómetra frá norðri til suðurs en sjúkraþjónustan hefur höfuðstöðvar í Luleå í norðurhluta landsins.

„Þetta vandaða val staðfestir að Pilatus PC-24 er ein fullkomnasta þota sem völ er á til sjúkraflutninga“, segir Oscar Schwenk, forstjóri Pilatus, sem tekur fram að framleiðandinn ætlar sér að markaðsetja þotuna enn frekar í sambærilegum tilgangi.

Um borð í Pilatus PC-24 þotunni með innréttingu fyrir sjúkraflug

KSA er annað fyrirtækið sem annast sjúkraflutningar sem leggur inn pöntun í Pilatus PC-24 en ástralska sjúkraflugsfyrirtækið Royal Flying Doctor Service pantaði sex slíkar þotur árið 2014 og hafa af þeim þrjár verið afhentar.

Pilatus PC-24 sjúkraþotan kemur með þrýstingsjöfnuðu rými sem er innréttað með rúmaðstöðu fyrir þrjá sjúklinga og eitt hvíldarrúm fyrir sjúkraliða eða lækna. Þá kemur þotan með stórri hurð svo hægt sé að koma sjúklingi fyrir um borð með skjótum hætti.

Pilatus PC-24 sjúkraþota sem afhent hefur verið til sjúkraflugsþjónustunnar í Ástralíu

KSA er fjármagnað og í sameiginlegri eigu allra þeirra 21 sýslna sem mynda Svíþjóð. Fram kemur að tími skiptir höfuðmáli er kemur að neyðartilfellum í svo stóru landi og er því nauðsynlegt að tryggja almenningi í Svíþjóð möguleikann á því að hægt er að fljúga á sem stystum tíma með þann sem þarf að komast tafarlaust undir læknishendur.

Ein ástæða þess að KSA valdi PC-24 þotuna er vegna þess hversu hraðfleyg hún er auk þess sem hægt er að lenda og taka á loft á stuttum flugbrautum þegar verið er að sækja sjúklinga á afskektum svæðum í Svíþjóð.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga