flugfréttir
Tilraunir hjá Qantas með 19 tíma beint flug
- Þrjár tilraunaflugferðir með starfsmenn frá Sydney til London og New York
Sennilegt er að einhverjum farþegum finnist of mikið að sitja í flugvél í 19 klukkustundir
Qantas ætlar að framkvæma sérstakt tilraunaflug til þess að athuga hvort að 19 tíma farþegaflug frá Sydney til London og til New York sé fýsilegur kostur.
Þrjár tilraunaflugferðir verða farnar í haust, eitt í október, eitt í nóvember og það síðasta í desember
en um borð verða starfsmenn Qantas en nokkrir þeirra verða settir í hlutverk tilraunadýra.
Einhverjir verða látnir bera á sér tæki og skynjara sem mæla meðal annars svefn
en rannsóknarmenn við háskólann í Sydney munu svo skoða niðurstöður úr þeim mæliingum. Einnig verður
fylgast með atferli þeirra um borð á meðan á hinu 19 klukkstunda flugi stendur og fylgast m.a. með hvernig þeir
borða, drekka, hversu oft þeir standa upp og hreyfa sig í þeim tilgangi að sjá áhrif flugsins á heilsu og þægindi.
Í dag er ekkert beint áætlunarflug milli Sydney og London en Qantas hefur hingað til flogið til Heathrow-flugvallarins
í London með viðkomu í Asíu á leiðinni.
Meðal annars verður fylgst með svefnmynstri þeirra starfsmanna sem verða um borð í tilraunarfluginu
„Últra-langar flugleiðir vekja upp ýmsar spurningar varðandi þægindi farþega og áhafnarinnar og þessar
tilraunaflugferðir eiga eftir að láta okkur fá þær upplýsingar sem við erum að leitast eftir í þeim tilgangi
að lágmarka flugþreytu“, segir Alan Joyce,
framkvæmdarstjóri Qantas.
Ef flugfélagið ástralska sér fram á að 19 tíma beint flug sé ekki of mikið fyrir farþega þá gæti svo farið
að fyrstu beinu flugferðirnar milli Sydney og London og Sydney og New York hefjist árið 2022.
Tilraunirnar eru hluti af verkefninu „Project Sunrise“ sem er framtíðarstefna Qantas í að bjóða upp á beint
flug frá Ástralíu til Evrópu en til greina kemur að nota Boeing 787 þotur eða Airbus A340 þotur til flugsins
„Ekkert flugfélag hefur framkvæmt sambærilegar prófanir áður eins og við erum að fara að gera í haust“, segir Joyce.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.