flugfréttir

Panta 22 rafmagnsflugvélar frá Bye Aerospace

22. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:53

Sun Flyer 2 rafmagnsflugvélin

Rafmagnsflugvélaframleiðandinn Bye Aerospace í Bandaríkjunum hefur fengið pöntun í 22 eintök af eFlyer 4 flugvélinni sem er lítil tveggja sæta flugvél, knúin áfram með rafmagnsmótor.

Pöntunin kemur frá fyrirtækinu Quantum Air sem er nýtt fyrirtæki í Bandaríkjunum sem hefur einnig pantað tvær eFlyer 2 flugvélar þar að auki.

„Rafmagnsflugvélar eru öruggari, hljóðlátari og sparneytnari heldur en hefðbundnar flugvélar og þetta er framtíðin“, segir Scott Akina, varaforstjóri Quantum Air, sem einnig er flugmaður.

Bye Aerospace hefur fengið pantanir í yfir 600 eintök af eFlyer-flugvélinni frá flugskólum, einkaaðilum og fyrirtækjum sem bjóða upp á útsýnisflug.

Fjórir mánuði eru síðan að norska fyrirtækið OSM Aviation lagði inn pöntun í 22 eintök af eFlyer 2 flugvélinni fyrir OSM Aviation Academy flugskólann en sú vél kemur á markaðinn árið 2021.

eFlyer 4 er hinsvegar ný útgáfa af eFlyer-flugvélinni sem var kynnt til leiks á flugsýningunni í Oshkosh árið 2017 en sú vél kemur með öflugri rafhlöðu sem gæti einnig hentað fyrir stærri flugvélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga