flugfréttir

Maður gekk upp að Boeing 737 þotu sem var á leið í flugtak

- Klifraði yfir grindverk flugvallarins í Mumbai á Indlandi

23. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Flugvélin var á leið frá Mumbai til Bengaluru í gær þegar maður kom gangandi að þotunni eftir að hafa komist inn á flugvallarsvæðið

Smávægileg töf varð á brottför hjá indverska flugfélaginu SpiceJet til Bengaluru í gær er karlmaður á þrítugsaldri gerði sér lítið fyrir og klifraði yfir grindverk á flugvellinum í Mumbai á Indlandi og gekk í átt að Boeing 737 þotu sem var að aka í átt að flugbraut.

Atvikið, sem er litið mjög alvarlegum augum, náðist á öryggismyndavél en maðurinn gekk að þotunni þar sem hún ók eftir akbraut („taxiway“) og fór að nefhjóli þotunnar.

Maðurinn gekk sallarólegur að nefhjóli þotunnar og hélt síðan áfram og labbaði undir vélinni að aðalhjólastellinu en flugmennirnir drápu því næst á hreyflunum og flugvallarökutæki mætti því næst á staðinn til að koma manninum í burtu.

„Flugmennirnir slökktu á hreyflunum til að forðast slys þegar þeir sáu manninn ganga í áttina að þeim“, segir talsmaður indverskra flugmálayfirvalda en maðurinn komst inn á flugvallarsvæðið og fór framhjá búnaði sem er ætlað að fara í gang ef vart er við óviðkomandi hreyfingu við flugbrautirnar.

Lögregla mætti á staðinn og handtók manninn sem var fjarlægður af flugvellinum og er málið nú til rannsóknar.

Myndband sem einn farþegi í flugstöðinni náði af atvikinu og setti á Twitter:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga