flugfréttir
Óhapp við A-skoðun á risaþotu Emirates
- Nefhjól á Airbus A380 féll saman í viðhaldsskýli félagsins í Dubai
Atvikið átti sér stað við reglubundna skoðun á einni af Airbus A380 risaþotum Emirates
Ein af Airbus A380 risaþotum Emirates er töluvert skemmd eftir óhapp sem átti sér stað er þotan var að gangast undir reglubundna skoðun í flugskýli félagsins á flugvellinum í Dubai þar sem félagið hefur höfuðstöðvar sínar.
Ljósmyndum af óhappinu hefur verið dreift á samfélagsmiðla sem sýna samanfallið nefhjól eftir að mistök áttu sér stað er þotan
gekkst undir A-skoðun.
Í tilkynningu frá Emirates kemur fram að engan af flugvirkjum félagsins sakaði en félagið rannsakar nú með hvaða hætti atvikið bar að garði.
Á myndunum má einnig sjá að trjóna vélarinnar, sem ver veðurratsjánna, er stórskemmd eftir að nefhjólið féll saman auk þess sem skemmdur
urðu undir nefhluta vélarinnar og þá eru hjólahlerar skemmdir.
Atvikið átti sér stað þann 22. ágúst sl. og kemur fram að flugvirki hjá Emirates hafi tekið upp hjólabúnaðinn án þess að viðeigandi pinni hafi verið
settur í til að koma í veg fyrri að hjólið falli saman þegar flugvél er á jörðu niðri.
Risaþotan ber skráninguna A6-EOP og er hún fjögurra ára gömul, smíðuð árið 2015.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.