flugfréttir
Þotu United snúið við til Keflavíkur vegna bilunar í hreyfli
Flug UA139 var komið í 26.000 feta hæð áleiðis til Newark í Bandaríkjunum þegar upp kom bilun í öðrum hreyflinum
Farþegaþota af gerðinni Boeing 757-200 frá United Airlines þurfti að snúa við skömmu eftir brottför frá Keflavíkurflugvelli í dag er bilun kom upp í öðrum hreyfli vélarinnar.
Þotan, sem var á leið til Newark-Liberty flugvallarins í New Jersey, fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli kl. 12:09
en hálftíma síðar, kl. 12:40, er hún var komin í 26.000 feta hæð yfir Grænlandshafi, í um 238 kílómetra (130 nm) fjarlægð
vestsuðvestur af Reykjanesi, snéri þotan við og hélt til baka til Keflavíkur.
Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar þotan lenti aftur klukkan 13:18 og voru að minnsta kosti
fimm sjúkrabílar í viðbragðsstöðu auk slökkvibíla og lögreglubíls.
Lendingin gekk giftusamlega og varaði flugstjórinn farþega við því að láta sér ekki bregða þótt þeir myndi sjá fjölmennt
neyðarteymi í viðbragðsstöðu út um gluggann eftir lendingu en 178 manns voru um borð í vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.