flugfréttir

TF-MYA skemmd eftir að hafa orðið fyrir gæsahópi í flugtaki

- Hætti við flugtak með tvo sjúklinga á Reykjavíkurflugvelli

26. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 20:41

TF-MYA, sjúkraflugvél Mýflugs á Reykjavíkurflugvelli

TF-MYA, Super King Air sjúkraflugvél Mýflugs, varð fyrir skemmdum í dag er flugvélin varð fyrir hópi gæsa sem flugu í veg fyrir vélina er hún var í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Flugvélin var á flugtaki á braut 13 kl. 16:21 í dag á leið til Akureyrar þegar gæsahópur flaug fyrir vélina þegar hún var í flugbrautarbruninu en flugmenn vélarinnar hættu við flugtakið, stöðvuðu vélina og héldu til baka að stæði.

Tveir sjúklingar voru um borð í vélinni sem verið var að flytja aftur norður til Akureyrar eftir læknisþjónustu í Reykjavík og verða þeir fluttir þess í stað norður á morgun.

Skemmdir og blóð eftir gæsirnar undir vængrótinni vinstra megin

Að sögn Leifs Hallgrímssonar, framkvæmdarstjóra Mýflugs, í fréttum RÚV er tjónið talið vera þónokkuð og gæti verið að flugvélin verði frá í allt að tvær vikur vegna viðgerðar.

Önnur sjúkraflugvél Mýflugs hefur verið virkjuð til sjúkraflugs í stað TF-MYA en félagið hefur einnig til umráða TF-MYV sem er líka af gerðinni Beech B200 Super King Air.

Um borð í flugvélinni voru tveir sjúklingar, einn aðstandandi, tveir flugmenn og einn sjúkraflutningamaður og sakaði engan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga