flugfréttir
Stærsta slökkviliðsflugvél heims berst við eldana í Amazon
- Ríkisstjórn Bólivíu pantar slökkviaðstoð frá Global SuperTanker Services
Global SuperTanker kemur með átta vatnstönkum sem til samans geta borið 90 þúsund lítra af vatni
Stærsta slökkviliðsflugvél heims, Global SuperTanker, berst nú við skógareldana sem geisa í Amazon-frumskóginum en þotan er Boeing 747 júmbó-þota sem var breytt í sérstaka flugvél til að sinna slökkvistörfum árið 2015.
Global SuperTanker flugvélin hefur lent og tekið á loft um fimm sinnum á hverjum degi frá því í síðustu viku
á Viru Viru International flugvellinum í borginni Santa Cruz í Bólivíu sem hefur flugbraut sem er 3,5 kílómetra löng.
Flugvélin er í eigu fyrirtækisins Global SuperTanker Services og sinnir hún útkalli ef þess er óskað til að berjast við skógarelda
og einnig til að eyða olíubrák á sjó en það var ríkisstjórn Bólivíu sem óskaði eftir aðstoð og fór Global SuperTanker fram á fyrirframgreiðslu upp á 98 milljónir króna áður en þotan var send til Suður-Ameríku.
Global SuperTanker flugvélin hefur flogið nokkrum sinnum á dag til og frá Santa Cruz í Bólivíu til að berjast við skógareldana í Amazon-frumskóginum
Slökkviliðsvélin, sem ber skráninguna N492EV, var upphaflega afhent til Japan Airlines sem Boeing 747-400 farþegaþota árið 1991 en vélin var afhent til Evergreen International Airlines árið 2012.
Global SuperTanker kemur með átta vatnstönkum sem til samans geta borið 90 þúsund lítra af vatni sem samsvarar
um 20.000 gallonum og sprautast vökvinn út um nokkrar háþrýstitúður sem staðsettar eru undir búknum. Bæði er hægt
að tæma alla tankana á mjög skömmum tíma eða stillt á hægan sprautunarhraða sem myndar þéttan úða.
Global SuperTanker flugvélin yfir Amazon-svæðinu
Ekkert lát virðist á eldunum á Amazon-svæðinu sem loga á mörgum stöðum og hefur verið lýst yfir neyðarástandi á mörgum svæðum
í Suður-Ameríku vegna eldanna og þá sérstaklega í Brasilíu.
Þetta er í fimmta sinn sem Global SuperTanker flugvélin fer í alþjóðlegan leiðangur til að berjast við elda en þotan slökkti elda
í Ísreal árið 2010 á vegum Evergreen International og þá hefur hún slökkt elda í Mexíkó og í Chile.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.