flugfréttir

Kalitta Air fær ekki fleiri afgreiðslupláss á Schiphol

- Gætu þurft að hætta öllu fraktflugi um Amsterdam

1. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:05

Boeing 747 fraktþota Kalitta Air á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam

Fraktflugfélagið Kalitta Air mun að öllum líkindum neyðast til þess að hætta að fljúga um Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam þar sem félagið fær ekki úthlutað nægilega fleiri föstum afgreiðsluplássum á flugvellinum.

Stjórn Kalitta Air hefur sent samgönguráðuneyti Hollands bréf þar sem félagið fer fram á að beiðni sé send til KLM og Delta Air Lines og athugað hvort þau félög séu reiðubúin í að afhenda nokkur pláss til Kalitta Air en 60% af öllum flugtökum og lendingum á Schiphol teljast til þessara tveggja flugfélaga.

Í sumar hefur Kalitta Air aðeins haft tvö lendingar- og flugtakspláss á viku á Schiphol en yfir vetrartímann fær félagið úthlutað pláss í kjölfar sérstakrar beiðni sem senda þarf inn fyrir hvert flug.

Um 500.000 flugtök og lendingar eiga sér stað árlega á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam en kvótinn var lækkaður árið 2018 niður í 499.500 flugtök og lendingar vegna umhverfissjónarmiða og verður kvótinn ekki hækkaður vegna þessa.

Kalitta Air segir að vegna erfiðleika við að fá fleiri pláss þá stefnir allt í að félagið muni hætta að fljúga með frakt frá Schiphol til New York JKF í vetur.

Fraktflugfélagið hefur lengi átt í útistöðum við hollensk stjórnvöld sem saka Kalitta Air um að vera mjög óstundvíst og hefur félagið oft ekki náð að halda sig innan við afgreiðslutímann sem því er úthlutað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga