flugfréttir
Rússar hafa áhuga á fjartengdri flugumferðarstjórnun
Með fjartengdri flugumferðarstjórnun sér flugumferðarstjóri lifandi útsendingu frá myndavélum á flugvelli sem staðsettur er á allt öðrum stað
Stjórnvöld í Rússlandi hafa lýst yfir áhuga fyrir því að koma upp fjartengdri flugumferðarstjórnun á nokkrum flugvöllum í landinu þar sem flugumferðinni væri þá stjórnað úr flugturni sem staðsettur er á allt öðrum stað.
Slík tækni hefur rutt sér til rúms til að mynda í Svíþjóð en Svíar hafa komið upp svokallaðri „Remote Tower Center“
á flugvellinum í Örnsköldsvik sem er útbúinn fjölda laser-skynjara og myndavéla ásamt fullkomnri veðurstöð og eru allar upplýsingarnar sendar til flugturns
sem er staðsettur í yfir 100 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum sjálfum.
Rússneska flugumferðarstjórnin, Rosaviatsia, hefur átt í viðræðum við rússneska samgönguráðuneytið og
rannsóknarstofnun flugmála en stjórnvöld í Rússland telja að með fjartengdri flugumferðarstjórn væri
hægt að auka gæði og hagkvæmni í rekstri á flugvöllum þar sem flugumferð er tiltölulega lítil.
Formlegar viðræður varðandi þennan möguleika fóru fram á MAKS flugsýningunni í Moskvu á dögunum og deildu
aðilar frá öðrum löndum reynslu sinni af fjartengdri flugumferðarstjórnun og einnig greindu þeir frá þeim vandamálum
sem geta komið upp við að flytja gögn í beinni frá fjartengda flugvellinum til stjórnstöðvar.
Írsk flugmálayfirvöld hafa til að mynda þegar gert samning við Saab í Svíþjóð um uppsetningu á fjartengdri flugstjórnartækni á flugvellinum í Dublin en þaðan stendur til að stjórna flugumferðinni á flugvöllunum í Cork og á Shannon.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.