flugfréttir
Uzbekistan setur á sölu sex Boeing 767 og 757 þotur
- Sjö Ilyushin Il-114 flugvélar einnig til sölu
Boeing 757-200 þota Uzbekistan Airways
Uzbekistan Airways hefur auglýst til sölu nokkrar Boeing-þotur auk þess sem félagið freistar þess að selja einnig farþegaflugvélar af gerðinni Ilyushin Il-114.
Félagið auglýsir fjórar Boeing 767 breiðþotur til sölu en tvær af þeim eru af gerðinni Boeing 767-300ER smíðaðar á árunum 2003 og 2004 og tvær
Boeing 767 fraktútgáfur sem framleiddar voru árið 1996 og 1997.
Þá er félagið með til sölu tvær Boeing 757-200 þotur sem framleiddar voru árið 1999 en allar Boeing 767 og 757 þoturnar koma
með Pratt & Whitney hreyflum.
Ilyushin Il-114 flugvélarnar, sem félagið er með til sölu, eru sjö talsins en um sjaldgæfar flugvélar er að ræða þar sem aðeins voru
smíðuð 20 eintök af þessari gerð. Vélarnar eru skrúfuþotur sem eru sambærilegar Saab 2000 flugvélunum.
Ástæða fyrir sölunni er endurnýjun flugflota Uzbekistan Airways sem hefur tekið í notkun fjórar Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-8
og á félagið eftir að fá þrjár afhentar til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.