flugfréttir

Gera samkomulag um kaup á 100 þotum frá Mitsubishi Aircraft

- Mesa Airlines ætlar að panta eitt hundrað M100 (MRJ) þotur

5. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 23:11

Fyrstu þoturnar verða afhentar til Mesa Airlines árið 2024

Bandaríska flugfélagið Mesa Airlines hefur undirritað samkomulag við Mitsubishi Aircraft um kaup á allt að 100 þotum frá SpaceJet af gerðinni M100 sem einnig eru þekktar undir nafninu Mitsubishi Regional Jet (MRJ).

Mesa Airlines annast flugrekstur fyrir American Eagle og United Express sem fljúga stuttar flugleiðir milli minni borga vestanhafs.

Tilkynnt var um samkomulagið á Regional Airlines Associations hátíðinni sem fer fram árlega en að þessu sinni fór ráðstefnan farm í Nashville í Tennessee.

Fyrirhugaður samningur tekur mið af því að Mesa Airlines leggi inn staðfesta pöntun í 50 þotur auk þess sem félagið ætlar að tryggja sér kauprétt á fimmtíu þotum til viðbótar og eiga afhendingar að hefjast árið 2024.

Mitsubishi Aircraft kynnti nýtt nafn fyrir MRJ þoturnar á flugsýningunni í París í júní og heita þoturnar því núna SpaceJet.

Þá var ákveðið að hætta við þróun á hinni 70 sæta MRJ70 þotu og einblína eingöngu á útgáfuna sem tekur yfir 70 farþega sem er SpaceJet M100. Stærri útgáfan, sem mun bera heitið M90, er ætlað að taka 88 farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga