flugfréttir
Allt flug liggur niðri hjá BA vegna verkfalls flugmanna
- Flugmenn krefjast launahækkunnar í takt við aukinn hagnað hjá BA
Töluvert færri flugtök og lendingar munu eiga sér stað um Heathrow-flugvöll og Gatwick vegna verkfallsins
Næstum öll flugáætlun British Airways liggur niðri í dag þar sem að verkfall flugmanna hjá félaginu er skollið á en verkfallsaðgerðirnar munu einnig raska flugi á morgun, 10. september.
Fram kemur að þetta sé í fyrsta sinn í sögu British Airways sem að flugmenn félagsins fara í verkfall á sama tíma og British Airways fagnar 100 ára afmæli félagsins.
Í yfirlýsingu frá British Airways kemur fram að félagið hafi neyðst til þess að fella niður næstum 100% af öllu því flugi
sem fyrirhugað var í dag vegna verkfallsaðgerðanna sem skipulagðar eru af flugmannafélaginu BALPA.
Félagið hefur aflýst 1.500 flugferðum í dag og á morgun sem hefur áhrif á um 280.000 farþega og mun það kosta
British Airways tekjumissi upp á 12 milljarða króna.
BALPA hafði varað við yfirvofandi verkfallsaðgerðum í ágúst og er einnig áætlað að þriðji verkfallsdagurinn verði þann 27. september
en flugmenn hjá British Airways eru ósáttir við að félagið sé ekki að deila hagnaði félagsins til starfsmanna í formi kauphækkunnar.
„Þetta verkfall er dýrkeyptara fyrir flugfélagið samanborið við ef þeir hefðu ákveðið að koma til móts við kröfur flugmanna og samið
við þá“, segir Brian Strutton hjá BALPA.
British Airways hefur sent tölvupóst til þeirra 4.300 flugmanna sem starfa hjá félaginu þar sem fram kemur að þeir séu að brjóta
reglur í starfsmannasamningum og hótar félagið því að svipta þá fríðindum sem þeir hafa haft en til að mynda
geta flugmenn ferðast með fjölskyldur sínar fyrir aðeins 10 prósent af almennu fargjaldi.
British Airways segir að félagið hafi þegar boðið flugmönnum „rausnarlega“ kauphækkun upp á 11 prósent en því hafi verið hafnað. Flugstjórar hjá British Airways eru að meðaltali með 2.1 milljón krónur í mánaðarlaun á meðan aðstoðarflugmenn hafa um 900.000 krónur í laun á mánuði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.