flugfréttir
Rekstur Norwegian sagður hanga á bláþræði
- Láta reyna á að fresta greiðslum af skuldabréfum til að forðast gjaldþrot
Boeing 737 þota Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Sagt er að Norwegian sé að reyna við síðasta hálmstráið til þess að forða flugfélaginu norska frá gjaldþroti en í augnarblikinu er rekstrarfé félagsins af mjög skornum skammti og á félagið í viðræðum við lánadrottna og skuldabréfaeigendur.
Í frétt Conde Nast Traveler er haft eftir sérfræðingum í flugiðnaðinum að framtíð Norwegian hangi í raun og veru
á bláþræði eins og staðan er núna. „Þeir eru að reyna að hafa stjórn á þessari krísu og eru að gera allt sem í þeirra
valdi stendur en þeir eru alveg á brúninni“, segir Daniel Roeska, greiningarráðgjafi í frétt CNN.
Félagið er sagt vera að reyna að safna saman meira fé áður en erfiður vetur gengur í garð sem gæti riðið Norwegian að fullu
sökum dræmra bókana á flugferðum yfir vetrartímann en félagið hefur meðal annars beðið lánadrottna um að fá 2 ára frest til viðbótar vegna greiðslu af skuldabréfum að upphæð sem nemur 47 milljörðum króna.
Sagt er að Norwegian sé að reyna að selja lendingarpláss sín á Gatwick-flugvelli til að auka rekstrarfé félagsins en meðal
þess sem hefur haft slæm áhrif á rekstur Norwegian er vandamál með Dreamliner-vélarnar í flotanum auk kyrrsetningar
Boeing 737 MAX vélanna en þessi tvö atriði hafa kostað Norwegian um 20 milljarða króna það sem af er ári þrátt fyrir mjög
annasamt sumar.
Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian og einn af stofnendum félagsins, tilkynnti í júlí að hann myndi stíga til hliðar
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rekstur Norwegian er á barmi gjaldþrots en orðrómur um endalok félagsins hefur farið reglulega
á krek á undanförnum misserum en þrátt fyrir það hafa fá flugfélög í Evrópu vaxið eins ört líkt og Norwegian.
Norwegian hefur í ár neyðst til þess að fækka flugvélum og skera niður í leiðarkerfinu og meðal annars með því að hætta
öllu flugi yfir Atlantshafið milli Írlands og Norður-Ameríku en þær aðgerðir hafa ekki náð að duga
til.
Norwegian mun eiga fund með skuldabréfaeigendum þann 16. september þar sem félagið mun ræða um þann möguleika að fresta
greiðslum fram til áranna 2020 og 2021 en félagið á að öðru leyti að greiða tugi milljarða af skuldabréfunum, annars vegar í desemeber næstkomandi og svo aftur í ágúst 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.