flugfréttir
Röskun á flugi um San Francisco vegna framkvæmda á flugbraut
10R/28L brautin er þekkt sem ein af þeim brautum sem liggja samhliða hvor annarri á San Francisco flugvellinum
Yfir 1.100 flugferðum hefur verið seinkað eða aflýst um flugvöllinn í San Francisco frá því 7. september sl. eftir að einni af aðalflugbrautum vallarins var lokað vegna framkvæmda sem nauðsynlega þurfti að ráðast í tarfarlaust.
Um er að ræða 10R/28L sem er ein af fjórum flugbrautunum á SFO en í ljós kom að
þreyta var komin í undirstöðulag undir yfirlagi brautarinnar og munu framkvæmdir
standa yfir til 27. september.
Um 13% færri flugtök og lendingar munu eiga sér stað á þessu tímabili um
flugvöllinn í San Francisco vegna þessa og hafa flugfélög þurft að aðlaga flugáætlun
sinni í kjölfarið.
Yfirlag brautarinnar var malbikað fyrir 2 árum síðan en þá kom í ljós að millilagið
var farið að bera merki um þreytu og sprungur voru komnar í þann hluta vegna
mikils álags á brautinni en ekki var tími til þess að fara í framkvæmdirnar þá.
Braut 10R/28L hefur aðallega verið notuð fyrir lendingar á meðan 01L/19R hefur
verið notuð fyrir brottfarir en brautarmótin, þar sem þessar tvær brautir mætast,
eru undir miklu álagi þar sem 68% af öllum flugtökum og lendingum fara yfir þetta tiltekna svæði brautanna.
Þúsundir farþega hafa orðið fyrir seinkunum í vikunni vegna röskunar á flugi
vegna framkvæmdana en stjórn flugvallarins í San Francisco segir að ekki var hægt að
bíða mikið lengur með verkið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.