flugfréttir

Á von á því að Boeing 737 MAX fljúgi á ný í nóvember

- Mun sennilega fljúga fyrst í Bandaríkjunum á undan öðrum löndum

12. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:20

Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing

Dennis Muilenburg, forstjóri Boeing, segist eiga von á því að flugfélög vestanhafs muni geta farið að fljúga Boeing 737 MAX þotunum á ný í nóvember.

Muilenburg segir að það gæti hinsvegar einhver bið orðið á því að flugmálayfirvöld í öðrum löndum utan Ameríku gefi Boeing 737 MAX grænt ljós sem þýðir að flugfélög í Bandaríkjunum munu verða fyrst til þess að fljúga MAX-vélunum og önnur lönd ásamt Evrópu fylgja í kjölfarið.

„Það er mjög góður árangur sem hefur náðst og mikil framför átt sér stað við að koma vélinni aftur í umferð. Það er möguleiki á að koma vélunum í loftið í nokkrum áföngum meðal flugmálayfirvalda víðsvegar um heiminn“, sagði Muilenberg í gær í ávarpi á ráðstefnu fjárfesta í Laguna Beach í Kaliforníu.

Útlitið er þó dekkra í Evrópu en vika er síðan að flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) tilkynnti að stofnunin hafi tekið þá ákvörðun að fara fram á ítarlegar prófanir á Boeing 737 MAX þotunni og það án hiðs svokallaða MCAS-kerfis áður en hún fær grænt ljós til að fljúga á ný.

Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur í Mexíkó

Sá tími sem fer í undirbúning á enn frekari prófunum, flugtilraunum, úrvinnslu á niðurstöðum og gerð vottunnar gæti þó tekið marga mánuði til viðbótar sem þýddi að Boeing 737 MAX gæti ekki flogið á ný í Evrópu fyrr þegar vel er liðið á árið 2020 ef EASA mun standa við þá yfirlýsingu.

Á von á að FAA gefi grænt ljós á næstu vikum

Muilenberg lét ekki mikil ummæli falla varðandi yfirlýsingu EASA um að tveir áfallsskynjarar og hugbúnaðaruppfærsla myndu ekki leysa vandamálið með Boeing 737 MAX vélarnar og varðandi að Airbus A320 hafi þrjá slíka skynjara sagði Muilenberg að um tvær mjög ólíkar flugvélar væru að ræða er kemur að hönnun.

Muilenberg sagði að skortur á samræmi milli flugmálayfirvalda varðandi tímasetningu um endurkomu MAX þotunnar væri hinsvegar stórt vandamál en segist fullviss um að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) muni greiða götu Boeing 737 MAX til þess að hefja sig til flugs á ný núna í nóvember.

Muilenberg segir að búið sé að laga og uppfæra þann hugbúnað sem snýr að MCAS kerfinu og hafi það verið gert í sumar en það sem er núna búið að bæta við eru tvær áfallshornsskynjarar sem munu bera sig saman og koma fram með viðvörun ef upplýsingar frá þeim tveimur ber ekki saman.

Þá greindi framkvæmdarstjórinn frá því að sérstök samhæfingarnefnd, sem stofnuð var á vegum FAA, mun senda frá sér lokaálit og greinargerð vegna uppfærslunar er snýr að því að kynna hana fyrir flugmönnum í flughermi sem verður hlut af staðlaðri þjálfun í hermi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga