flugfréttir

Reyna að innheimta milljarðaskuld frá AirAsia

- Skulda Malaysia Airports 1,2 milljarð í farþegaskatta

12. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Flugvélar AirAsia á flugvellinum í Kuala Lumpur

Flugvallarfyrirtækið Malaysia Airports, sem annast rekstur flugvalla í Malasíu, segir að til standi að ráðast í innheimtuaðgerðir þar sem að AirAsia og AirAsia X skulda fyrirtækinu yfir 1,2 milljarða króna í farþegaskatta.

Málið var þingfest fyrir dómi í Malasíu í júlí í sumar og reyndi flugvallarfyrirtækið að innheimta skuldina í ágúst með því að krefjast þess að AirAsia myndi tryggja fé fyrir skuldinni og þá var birt krafa í byrjun þessa mánaðar fyrir stjórn flugfélagsins.

AirAsia segir að félagið ætlar sér að „bregðast við“ vegna greiðslunar en félagið hefur ekki gefið neitt upp nánari upplýsingar um hvenær skuldin verði gerð upp.

Skuldin er sögð tilkomin vegna deilna í kjölfar nýs farþegaskatts vegna þeirra farþega sem ferðast frá Kuala Lumpur til suðausturhluta Asíu frá nýju KLIA2 flugstöðinni en skattarnir voru kynntir til sögunnar árið 2018.

AirAsia hefur síðan þá mótmælt þessum gjöldum á þeim forsendum að KLIA2 sé lágfargjaldaflugstöð og eigi ekki að vera sömu farþegaálögur fyrir þá farþega sem fljúga þaðan og fyrir þá sem ferðast um aðalflugstöðina.

Síðan þá hefur ríkisstjórn Malasíu tilkynnt að til standi að lækka farþegaskatta um KLIA2 flugstöðina en skuldin er hinsvegar enn til staðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga