flugfréttir
Boeing 787 lenti næstum því með hjólin uppi
- Rannsaka atvik sem átti sér stað á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í gær

Dreamliner-þota Vietnam Airlines
Litlu munaði að farþegaþota frá Vietnam Airlines hefði lent með hjólabúnaðinn uppi er vélin var í aðflugi að flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í gær.
Um var að ræða Dreamliner-þotu félagsins af gerðinni Boeing 787-9 sem var að lenda í Melbourne
eftir flug frá borginni Ho Chi Minh City.
Þegar þotan var á lokastefnu tók flugumferðarstjóri í flugturninum eftir því að hjólin voru ekki niðri og lét hann flugmennina
vita sem hættu strax við lendinguna og fóru í fráhvarfsflug (go around).
Samkvæmt upplýsingum frá Flightradar24.com þá var þotan í 650 feta hæð yfir jörðu er flugmennirnir hættu við lendinguna
og hækkuðu flugið á ný og fóru upp í 4.100 feta hæð en þotan lenti svo 22 mínútum síðar.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu rannsakar nú atvikið og verður farið fram á að fá göng frá áhöfninni til þess að vinna
að rannsóknni.


14. október 2019
|
Cabo Verde Airlines hefur tilkynnt að félagið mun hefja beint áætlunarflug frá Grænhöfðaeyjum til Lagos í Nígeríu.

25. október 2019
|
Yfir 40 flugvélar í Suður-Afríku voru ýmist kyrrsettar tímabundið eða hafa þurft að ganga í gegnum ítarlegri skoðun í kjölfar fyrirmæla frá flugmálayfirvöldum í landinu eftir að í ljós kom að starfs

9. desember 2019
|
Þyrla frá fréttastöðinni KABC-TV í Bandaríkjunum lenti í árekstri við dróna í síðustu viku er þyrlan var á flugi yfir miðborg Los Angeles.

13. desember 2019
|
Ástralska flugfélagið Qantas hefur valið Airbus A350-1000 þotuna sem þann flugvélakost sem verður fyrir valinu fyrir „Sólarupprásarverkefnið“ (Project Sunrise) sem miðar af því að bjóða farþegum upp

12. desember 2019
|
Southwest Airlines hefur náð samkomulagi við Boeing um skaðabótagreiðslu vegna þess fjárhagstjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningarinnar á Boeing 737 MAX þotunum.

12. desember 2019
|
Wizz Air ætlar sér að stofna sérstakt lágfargjaldaflugfélag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í samstarfi við stjórnvöld þar í landi en félagið verður annað tveggja flugfélaga sem eru að líta dagsin

11. desember 2019
|
Sú staða gæti komið upp að Boeing 737 MAX þoturnar verði ekki farnar að fljúga á ný innan Evrópu fyrir sumarið 2020 þrátt fyrir að þær verði byrjaðar að fljúga aftur í áætlunarflugi vestanhafs.

10. desember 2019
|
Ísraelska flugfélagið El Al Israel Airlines ætlar að framkvæma þrjú tilraunaflug á næsta ári til Melbourne í þeim tilgangi að athuga hvort að grundvöllur sé fyrir því að hefja beint áætlunarflug til

10. desember 2019
|
Herflutningaflugvélar af gerðinni Lockheed C-130H Hercules, frá flughernum í Chile með 38 manns um borð, er saknað eftir að hún hvarf af ratsjá í gærkvöldi yfir Suður-Íshafi, mitt á milli syðsta odda

9. desember 2019
|
SAS er aftur orðið stærsta flugfélagið á Norðurlöndum í kjölfar samdráttar hjá Norwegian en flugfélagið norska hrifsaði þann titil af SAS í janúar árið 2017.

9. desember 2019
|
SAS (Scandinavian Airlines) mun á næsta ári hætta að fljúga á Narita-flugvöllinn í Tókýó þar sem til stendur að félagið muni færa sig yfir á Haneda-flugvöllinn sem er sá næststærsti í borginni.