flugfréttir

Indverjar framkvæma sína eigin úttekt á 737 MAX líkt og EASA

20. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:55

Kyrrsett Boeing 737 MAX þota indverska flugfélagsins SpiceJet

Flugmálayfirvöld á Indlandi ætla að fara að fordæmi Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) og framkvæma sína eigin úttekt á Boeing 737 MAX þotunum áður en indverskum flugfélögum verður gefið leyfi til þess að fljúga þotunum á ný.

Yfirvöld á Indlandi ætla að hefja prófanir og úttekt á þeim uppfærslum og breytingum sem Boeing hefur gert á MCAS-kerfi vélanna um leið og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið Boeing 737 MAX vottun til þess að fljúga á ný vestanhafs.

Indversk stjórnvöld gera ekki ráð fyrir að Boeing 737 MAX fljúgi aftur um indverska lofthelgi fyrr en á næsta ári og segir aðili, sem vill ekki koma fram undir nafni en þekkir til málsins, að til standi að senda indverska flugmenn erlendis og aðila frá flugmálayfirvöldum til að prófa Boeing 737 MAX þoturnar sjálfir líkt og EASA ætlar að gera og framkvæma sína eigin úttekt í stað þess að taka mark á vottun frá FAA.

Ekkert flugfélag á Indlandi hefur pantað eins margar Boeing 737 MAX þotur líkt og SpiceJet sem lagði árið 2016 inn pöntun til Boeing í 205 eintök af Boeing 737 MAX en félagið hefur fengið 12 afhentar í dag og þá hefur indverska flugfélagið Jet Airways pantað 200 eintök af MAX-vélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga