flugfréttir

Flugmenn Thomas Cook segjast hafa verið stungnir í bakið

- Óvissa með hvort starfsmenn fái greidd laun

23. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:27

Flugmenn Thomas Cook segja að algjör óvissa ríki um hvort þeir fái greidd laun fyrir þennan mánuð

Félag breskra atvinnuflugmanna (BALPA) hafa birt frá sér yfirlýsingu í kjölfar gjaldþrots Thomas Cook þar sem flugmenn segja að þeir hafi verið „stungnir í bakið“ og skildir eftir í algjörri óvissu er kemur að launagreiðslum.

Flugmenn Thomas Cook segja að þeir hafi vaknað í morgun atvinnulausir og komist að því að þeir hafi núna enga vinnu og óvissa ríkir um hvort þeir fái greidd laun.

Í yfirlýsingunni kemur fram að á sama tíma og ráðherrar í ríkisstjórn Bretlands hafi sett af stað ítarlega áætlun til þess að bjarga öllum þeim farþegum sem áttu bókað flug heim þá kemur ekkert fram um hvaða aðgerðir séu í gangi er snýr að starfsfólki félagsins sem hefur verið stungið í bakið.

„Þrátt fyrir tilraunir til að bjarga rekstri Thomas Cook á sl. vikum þá vitum við ekki einu sinni hvort að starfsfólk fái greidd laun fyrir þennan mánuð. Flugmenn hjá Thomas Cook og allt starfsfólk félagsins á betra skilið en þetta“, segir í yfirlýsingu frá BALPA.

Fram kemur að flugmannafélagið muni berjast fyrir því á næstunni að fá laun greidd og hefja lögsókn ef þess þarf þar sem ekki er vitað hvað felst í gjaldþrotaferlinu er kemur að launagreiðslum. Þá segir í BALPA í yfirlýsingu sinni að samtökin heita því að styðja við bakið á öllum er kemur að því að fá starf aftur í flugiðnaðinum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga