flugfréttir
Lokaskýrslu vegna fyrra 737 MAX slyssins að vænta í október
- Telja meginorsökina megi rekja til hönnunargalla og skorts á eftirliti
Boeing 737 MAX þota Lion Air fórst þann 29. október árið 2018 en seinna slysið átti sér stað hjá Ethiopian Airlines í mars á þessu ári
Rannsóknarnefnd flugslysa í Indónesíu hefur lýst því yfir að von sé á lokaskýrsla í næsta mánuði varðandi fyrra flugslysið sem átti sér stað með Boeing 737 MAX er flug JT610 á vegum Lion Air fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta þann 29. október sl.
Samkvæmt aðila sem er kunnugur rannsókn slyssins, sem tjáði um lokaskýrsluna í viðtali við
The Washington Post sl. sunnudag, þá mun flugvélaframleiðandinn, Boeing, verða harðlega
gagnrýndur í skýrslunni þar sem talið er að nýr hugbúnaður í vélinni er talinn vera aðalorsök slyssins.
Einnig mun skýrslan koma inn á nokkur mistök meðal flugmanna vélarinnar auk mistaka
meðal flugvirkja en mistök í hönnun hjá Boeing og ófullnægjandi eftirlit meðal flugmálayfirvalda
í Bandaríkjunum mun vega þungt í skýrslunni.
Yfirvöld í Indónesíu birtu bráðabirgðarskýrluna í nóvember 2018, mánuði eftir slysið, en þar
kom meðal annars fram að sambærileg vandamál komu upp um borð í sömu flugvél deginum
áður en hún fórst sem hefur vakið upp spurningar hvers vegna stjórn flugfélagsins greip ekki strax til aðgerða og kyrrsetti þotuna.
Brak úr hreyfli þotunnar híft upp af hafsbotni á Jövuhafi í byrjun nóvember í fyrra
Í þeirri skýrslu kom fyrst fram að flugmenn vélarinnar höfðu átt í basli með að hafa stjórn
á vélinni þar sem sjálfvirkur hugbúnaður breytti stillingu á hæðarstýrisstilli sem beindi
nefi vélarinnar niður á við þegar þess var ekki þörf.
Þá gagnrýndi skýrslan einnig flugmenn vélarinnar fyrir að hafa ekki brugðist við og farið
eftir verklagsreglum félagsins sem kveða á um að flugmenn haldi ekki áfram för ef upp kemur
vandamál sem varðar flughæfni vélarinnar, vandamál með rafkerfi eða annað ástand sem er flokkað
sem varhugaverðar aðstæður vegna bilunar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.