flugfréttir
EASA bannar listflug með XtremeAir XA42 flugvélum
- Hætta á að mótorinn geti losnað úr vélinni
XtremeAir XA42 listflugvélin
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur bannað allt listflug með flugvél af gerðinni XtremeAir XA42 sem er eins hreyfils sportflugvél.
Ástæðan er sögð vera af ótta við að upp geti komið aðstæður þar sem hætta
er á að mótorinn geti losnað frá burðarvirki vélarinnar ef verið er að
fljúga listflug á vélinni með tilheyrandi æfingum.
Nýverið kom í ljós að járnbitar („struts“), við eldvegg á einni flugvél af gerðinni
XA42, höfðu losnað frá skrokknum sem festa mótorinn við búkinn en
það uppgötvaðist í tæka tíð áður en það olli slysi.
Þá kom einnig í ljós í mars á þessu ári, er reglubundin skoðun fór
fram á annarri flugvél af þessari gerð, að sprungur höfðu
myndast í skástífunum í vélinni sem varð til þess að tilmæli voru send út
og eigendum XA42 flugvéla gert að framkvæma skoðun á sínum flugvélum.
EASA segir að nauðsynlegt sé að breyta flughandbók vélanna og taka
skýrt fram að listflug sé ekki leyfilegt að svo stöddu auk þess sem farið
er fram á að viðvörunarspjald þess efnis sé sett í stjórnklefann í augsýn
flugmanns.
Þá fer EASA fram á að stutt skoðun á burðarjárnbitum verði hluti
af fyrirflugsskoðun í stað þess að farið var fram á að það var gert eftir 10
flugferðir þar sem flogið var listflug.
XA42, einnig þekkt sem Sbach342, er framleidd
af þýska flugvélaframleiðandanum XtremeAir og er vélin tveggja sæta
listflugvél sem kemur með 315 hestafla Lycoming AEIO-580 mótor.
EASA segir að hætta sé á því að mótorinn geti losnað frá burðargrind vélarinnar
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.