flugfréttir
IAG sér fram á slæma afkomu vegna verkfalla flugmanna BA
Flugvélar British Airways á Heathrow-flugvellinum í London
International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið varar flugmenn við þeim afleiðingum sem verkfallsaðgerðir geta haft en félagið tapaði mun meiri fjárhæð en gert var ráð fyrir er flugmenn British Airways lögðu niður störf sín þann 9. og 10. september síðastliðinn.
British Airways gerði ráð fyrir að verkfallsaðgerðirnar myndu kosta félagið um 4.5 milljarða króna á dag
en verkfallið kostaði félagið alls 18 milljarða þessa tvo daga sem er tvöfalt meira en gert var ráð fyrir.
Flugmenn British Airways höfðu einnig skipulagt verkfallsaðgerðir á morgun, 27. september, en í vikunni
voru þær aðgerðir afturkallaðar.
Flugmannafélagið BALPA segir að munurinn á kjarakröfum flugmanna og því tilboði sem British Airways kom með
sé um 761 milljón króna og hefði félagið verið betur sett með því að taka kröfum flugmanna þar sem tapið
vegna verkfallsins var töluvert meiri þar sem félagið aflýsti alls 4.521 flugferð á sex daga tímabili.
BALPA ákvað að hætta við þriðja verkfallsdaginn til þess að gefa báðum aðilum tækifæri til þess að ná sáttum
en stjórn félagsins og flugmenn hafa enn ekki ákveðið frekari viðræður.
Vegna hækkandi eldsneytisverð sér IAG fram á að rekstur fyrirtækisins verði rekinn með 29 milljarða króna
tapi þegar árið 2019 verður gert upp en árið 2018 skilaði IAG inn hagnaði upp á 304 milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.