flugfréttir
Launalaust ársleyfi eða færa sig til Evrópu
- Ryanair segir að félagið hafi of marga flugmenn í Bretlandi
Ryanair hefur beðið breska flugmenn um að annað hvort taka sér launalaust leyfi eða flytja sig um set yfir til annarra starfstöðva á meginlandi Evrópu ef þeir vilja halda vinnunni.
Ryanair hefur enn og aftur lýst því yfir að félagið hafi of marga flugmenn og hefur stjórn Ryanair beðið breska flugmenn um að annað hvort taka sér launalaust leyfi eða flytja sig um set yfir til annarra starfstöðva á meginlandi Evrópu ef þeir vilja halda vinnunni.
Félagið segir í skriflegri yfirlýsingu til flugmanna að ef flugmenn eru ekki tilbúnir að taka við
öðrum hvorum valmöguleikanum gætu þeir átt von á því að fá uppsagnarbréf en félagið segir
að það verði að fækka flugmönnum í vetur.
Ryanair segir að of margir flugmenn séu með aðsetur á Stansted-flugvellinum og í Manchester
og hvetur félagið flugmenn til að taka launalaust leyfi í að minnsta kosti 12 mánuði en einnig
séu möguleiki á að fá fullar vaktir á þeim flugvöllum sem félagið flýgur um í Ungverjalandi, Morokkó og í Rúmeníu.
Stjórn Ryanair segir að orsök þessara aðstæðna megi að mestu rekja til seinkanna á Boeing 737 MAX
þotunum en félagið hefur áður varað við því að þurfa að loka bækistöðvum á nokkrum flugvöllum
í Evrópu yfir vetrartímann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.