flugfréttir

Aigle Azur hættir starfsemi: Öllum tilboðum í félagið hafnað

- Ríkisstjórn Frakklands lofar að veita 1.150 starfsmönnum vinnu á ný

27. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:33

Í síðustu viku var þegar búið að ferja hluta af flota félagsins í geymslu til Châteauroux-flugvallarins í Frakklandi

Aigle Azur, annað stærsta flugfélag Frakklands, er að öllum líkindum gjaldþrota eftir að dómstóll í Frakklandi hafnaði í morgun öllum yfirtökutilboðum sem bárust í félagið þar sem ekkert af þeim uppfylltu viðkomandi kröfur.

Flugfélagið hefur aflýst öllu flugi en rekstur félagsins hefur verið undir gjaldþrotameðferð frá því 6. september. Þá höfðu aðilar frest til 23. september til þess að skila inn tilboði og voru alls sjö fyrirtæki og flugfélög sem komu með tilboð en þeim var öllum hafnað.

Meðal flugfélaga sem höfðu komið með yfirtökutilboð í Aigle Azur voru Air France og Dubreuil Group, móðurfélag French Bee og Air Caraibes, en þau félög drógu fljótlega tilboð sín til baka.

Í yfirlýsingu frá samgönguráðherra Frakklands segir að ríkistjórnin muni aðstoða þá 1.150 starfsmenn, sem störfuðu hjá Aigle Azur, að vinna nýja vinnu eins fljótt og auðið er.

Sögu Aigle Azur má rekja 73 ár aftur í tímann en félagið var stofnað árið 1946 sem gerir félagið eitt það elsta af þeim flugfélögum sem starfrækt eru í Frakklandi en Air France er eina franska flugfélagið sem er eldra en það félag var stofnað árið 1933. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga