flugfréttir
Um 20 prósent flugmanna hjá easyJet verða konur árið 2020
- Stefnir í að flugfélagið breska nái takmarki sínu á næsta ári
Um 15 prósent af flugmönnum easyJet í dag eru konur og fer þeim fjölgandi
Breska lágfargjaldafélagið easyJet segist vera mjög bjartsýnt á að ná því takmarki að 20 prósent af nýjum flugmönnum félagsins verður kvenfólk árið 2020.
Marc Parent, framkvæmdarstjóri hjá þjálfunar- og flughermafyrirtækinu CAE, segir að easyJet muni „ná þessu takmarki á næsta ári“
en flugfélagið breska hefur lengi unnið hart að því að fá fleiri konur til starfa í stjórnklefanum.
CAE opnaði í gær nýja þjálfunarmiðstöð á London Gatwick flugvellinum og verður easyJet stærsti viðskiptavinurinn
en Parent tók fram í ræðu sinni að það sé frekar sláandi staðreynd að aðeins einn af hverjum 20 flugmönnum í heiminum er kvenmaður.
David Morgan hjá easyJet segir að árið 2018 hafi 15% af nýjum flugmönnum, sem ráðnir voru til starfa hjá félaginu, verið konur og
vinni félagið markvisst að því að hækka hlutfall þeirra.
Nýja þjálfunarmiðstöðin á Gatwick-flugvelli kemur með fimm Airbus A320 flughermum sem eru sérstaklega ætlaðir easyJet en aðeins
eru nokkrir dagar síðan að sambærileg þjálfunarmiðstöð var opnuð í Manchester og þá stendur til að opna bráðlega þá þriðju
í Mílanó eftir 8 daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.