flugfréttir
Ryanair vill fá Airbus-þotur úr flota Thomas Cook
- Færu í flota austurríska dótturfélagsins Lauda
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Ryanair er nú á höttunum eftir þeim Airbus-þotum sem voru í flota flugfélagsins Thomas Cook sem varð gjaldþrota í seinustu viku.
Stjórn félagsins hefur átt fund með þeim flugvélaleigum sem eiga þær þotur sem voru í flota Thomas Cook
og sér írska lágfargjaldarfélagið fyrir sér að láta austurríska dótturfélagð Lauda nota vélarnar.
Ryanair keypti rekstur Laudamotion í desember í fyrra og breytti nafni félagsins í Lauda en til stendur að
auka umsvif þess félags fyrir næstu sumarvertíð og væri það möguleiki með þeim Airbus-þotum
sem Thomas Cook hafði í rekstri.
O´Leary segir að ekki sé vitað hversu margar Airbus-þotur Ryanair myndi taka en það færi soldið
eftir því hversu marga flugmenn og áhafnir væri hægt að þjálfa til viðbótar fyrir sumarið 2020
en félagið hefur í dag 21 þotu í flotanum af gerðinni Airbus A320.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.