flugfréttir

Ein ný þota í flotann á tveggja vikna fresti næstu 10 árin

- Lufthansa er í dag 11. stærsta flugfélag heims er kemur að flugflota

8. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:25

Lufthansa mun bæta við allt að 200 þotum í flotann á næst árum

Lufthansa mun taka við nýrri þotu beint úr verksmiðju á tveggja vikna fresti næstu 10 árin eða til ársins 2029.

Lufthansa er 11. stærsta flugfélag heims er kemur að flugflota en félagið hefur í dag 300 flugvélar í flotanum og er von á 201 flugvél til viðbótar á næstu árum.

Félagið á von 150 þotum frá Airbus á næstu árum en af þeim mun félagið fá 31 af gerðinni Airbus A320neo og A321neo og 30 eintök af Airbus A350-900.

Þá mun Boeing afhenta Lufthansa fjörutíu þotur á næstu árum en af þeim verða 20 af gerðinni Boeing 777-9 og tuttugu Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.

Samkvæmt núverandi afhendingaráætlun Lufhansa þýðir þetta að félagið mun fá að meðaltali eina nýja þotu afhenta aðra hverja viku næsta áratuginn.

Lufthansa mun þurfa á miklum fjölda nýrra flugmanna að halda til að fljúga þeim flugvélum sem félagið fær næstu árin og hefur félagið áður tekið fram að allir þeir flugmenn, sem lokið hafa atvinnuflugmannsnámi eða hafa réttindi til atvinnuflugs, fá starf hjá Luftahansa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga