flugfréttir
SWISS kyrrsetur Airbus A220
Airbus A220 þota Swiss International Air Lines
Flugfélagið Swiss International Air Lines kyrrsetti í dag allar þær 29 Airbus A220 (CSeries) þotur sem félagið hefur í flotanum til að framkvæma skoðun á hreyflum vélanna í kjölfar nokkurra bilana sem hafa komið upp í flugi.
Seinasta atvikið átti sér stað í morgun er A220-300 þota SWISS þurfi að snúa við og lenda
í París á leið sinni frá Genf til Heathrow-flugvallarins í London eftir að hvellur varð í vinstri hreyfli með eldglæringum út um útblástursopið.
Sambærilegt atvik átti sér stað hjá SWISS þann 27. september er þota sömu gerðar og á sömu
flugleið var yfir Ölpunum er bilun varð í öðrum hreyflinum og þá átti annað atviki
sér stað þann 25. júlí hjá félaginu.
Airbus A220 þoturnar hétu upphaflega CSeries
Hreyflarnir á Airbus A220 þotum SWISS eru framleiddir af Pratt & Whitney og segir flugfélagið
að til stendur að skoða gaumgæfilega alla hreyflana og munu þoturnar ekki hefja sig á loft á ný
fyrr en skoðun er lokið og fullvíst er að vélarnar séu öruggar.
„SWISS tekur þessum atvikum mjög alvarlega og við erum í nánum samskiptum við Pratt & Whitney, yfirvöld og við Airbus í Kanada“, kemur fram í yfirlýsingu.
Flugfélagið mun þurfa að fella niður allar flugferðir með Airbus A220 þotunum á næstunni en ekki er vitað hversu margar flugferðir þarf að fella niður en farþegar verða bókaðir með öðru leiðum.
SWISS hefur 29 Airbus A220 þotur í flotanum en af þeim eru níu af gerðinni A220-100 og tuttugu af gerðinni A220-300.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.