flugfréttir
Skrokkur af Airbus A320 festist undir brú í Kína
Bílstjóri flutningabílsins náði að losa farminn undan brúnni með því að hleypa lofti úr dekkjunum
Skrokkur af Airbus A320 þotu festist undir umferðarbrú í Kína á dögunum eftir að flutningabílstjóri misreiknaði hæð farmsins út frá hæð brúarinnar.
Atvikið átti sér stað í borginni Harbin fyrr í þessum mánuði og voru margir sem ráku upp stór
augu í umferðinni er þeir sáu skrokk af þotu í litum kínverska flugfélagsins China Southern
fastan undir brúnni.
Bílstjórinn náði þó að vera fljótur að koma upp með hugmynd hvernig best væri að losa
skrokkinn undan brúnni og greip hann til þess ráðst að minnka loftið í dekkjunum á flutningabílnum.
Það tók samt ágætis tíma og voru margir ökumenn og vegfarendur sem náðu atvikinu
upp á myndband í farsímum og deildu því á samfélagsmiðla.
Skrokkurinn var þó ekki splunkunýr og hefði atvikið reynst mjög dýrkeypt ef verið væri að flytja hann til lokasamsetningarsalsins í verksmiðjum
Airbus í Tianjin en talið er að búkurinn hafi verið á leið í niðurrif.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.