flugfréttir
Air New Zealand mun hætta að fljúga til London
- Hafa flogið milli Los Angeles og London í 36 ár
Boeing 777 þota Air New Zealand á Heathrow-flugvellinum í London
Flugfélagið Air New Zealand ætlar að hætta að fljúga á milli Los Angeles og London en félagið hefur flogið daglega í 36 ár frá Auckland til Los Angeles og þaðan áfram til London.
Félagið ætlar að fljúga síðasta flugið milli Los Angeles og London í október árið 2020 en við
það munu tapast um 130 störf en þess í stað ætlar Air New Zealand að hefja beint flug frá Auckland á Nýja-Sjálandi til New York.
Jeff McDowall, framkvæmdarstjóri Air New Zealand, segir að það hafi verið erfið ákvörðun að
hætta með London-flugið en félagið verði hinsvegar að ákveða hvað hentar því best til lengra
tíma litið og tekur McDowall fram að það sé best að halda sig við beinar flugferðir frá heimastöð.
„Því miður þá mun þetta hafa áhrif á áhafnir í London auk ráðgjafa og starfsfólks á jörðu niðri
í söluskrifstofum í Hammersmith“, segir McDowall.
Air New Zealand mun byrja að fljúga til New York frá og með október 2020 og verður flogið
þrisvar í viku með Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.