flugfréttir

120 flugmenn segja upp störfum hjá Air India

23. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:47

Airbus A320 þota Air India

Mikil spenna hefur myndast milli flugmanna og stjórnarformanna Air India í kjölfar aðgerða félagsins til þess að einkavæða rekstur Air India.

Nýjustu aðgerðir til þess að selja félagið hefur valdið miklu fjaðrafoki og hafa um 120 flugmenn hjá félaginu, sem fljúga Airbus A320 þotum, sagt upp í einni stærstu hópuppsögn í sögu félagsins.

Flugmennirnir ákváðu að segja upp eftir að kröfum þeirra um launahækkun og bættari kjör var hafnað og eru þeir allir vongóðir um að fá vinnu hjá öðrum flugfélögum.

Air India sér samt ekki fram á að uppsagnir meðal 120 flugmanna eigi eftir að hafa áhrif á rekstur félagsins þar sem um 2.000 flugmenn starfa hjá félaginu.

Verkalýðsfélög óttast einnig að einkavæðing Air India eigi eftir að hrinda af stað uppsögnum og er talið að fjöldi starfsmanna verði sagt upp.

Air India gerði tilraun til þess að selja 76 prósent í félaginu í mars árið 2018 en þau áform gengu ekki eftir. Núna ætlar stjórn félagsins að selja allan hlut í félaginu og fella úr gildi skilmála sem kveða á um að nýir eigendur þurfa að halda nafni félagsins sem þýðir að þeir sem taka við rekstri félagsins mættu skipta um nafn á félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga