flugfréttir

Þotu snúið við eftir að farsími fannst um borð

- Enginn farþegi um borð í vélinni kannaðist við símann

23. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:26

Airbus A330-200 þotan á flugvellinum í Shannon eftir að henni var snúið við þegar síminn fannst um borð

Breiðþotu af gerðinni Airbus A330 frá Air France var snúið við til Írlands á leið sinni til Bandaríkjanna um helgina eftir að í ljós kom að farsími fannst í vélinni sem enginn farþegi um borð né neinn í áhöfn kannaðist við.

Þotan var á leið frá París til Chicago og var vélin að hefja úthafsflug yfir Atlantshafið þegar sími fannst sem hafði dottið á milli tveggja sæta í vélinni.

Þegar í ljós kom að engin um borð kannaðist við símann var ákveðið að snúa við þegar þotan var í um 440 kílómetra fjarlægð norðvestur af Írlandi og lenti flugvélin í Shannon um klukkustund síðar þar sem lögregla og herlögregla biðu vélarinnar.

Þotan tók meira eldsneyti áður en hún hóf sig aftur á loft og lenti vélin í Chicago um 3:50 klukkustundum á eftir áætlun.

Farsíminn var fjarlægður úr vélinni og var hann skannaður á flugvellinum í Shannon og kom ekkert óeðlilegt í ljós við símann.

Áhöfnin tók farsímann í sínar hendur en talið að eigandi símans hafi verið farþegi í vélinni í fyrra flugi og þykir sennilegt að hann hafi misst símann á milli sætanna. Líklegast þykir að síminn hafi svo farið framhjá starfsfólkinu sem sá um að þrífa vélina eftir flugið.

Flugvélin hafði verið í tvær klukkustundir á flugi þegar henni var snúið við:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga